Tóta litla lipurtá
16.09.2006 01:01:47 / tyra

FARIN OG KEM EKKI AFTUR

Já gott fólk, ég er flutt og kem ekki aftur hingað á þetta blogg.  Nýja fína bloggið mitt er: tyra.blog.is   Ég er orðin leið á þessu umhverfi og erfiðleikunum sem eru hér á þessu svæði svo ég bara færði mig.  Endilega fylgiði mér áfram og kíkið á hina síðuna mína, hún er að vísu frekar hrá ennþá, enda í mótun.  Og vitiði hvað, ég kom inn mynd af henni Gullbrá minni um leið, bara eins og að drekka vatn, snilld.

Koma nú, förum saman á mbl.is og skrifumst á þar. 

Bless og sjáumst á nýjum stað :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 09:30:09 / tyra

FORMLEG AFSÖKUNARBEIÐNI

Þessi orð eru til Kristínar minnar.  Ég skil ekki hvernig þetta gat farið svona fram hjá mér að þú vissir þetta ekki gullið mitt. :^) Kannski er það vegna þess að við tölum um allt og vitum nánast allt um allt hjá hvorri annarri, að þetta einhvern veginn datt niður á milli rimla og gleymdist að tilkynna þetta formlega.  Þetta var ekki skyndiákvörðun, það tók mig dálítinn tíma að velta þessu fyrir mér.  En núna um miðjan janúar s.l. tók ég endanlega ákvörðun.  Á þeim tímapunkti vorum við báðar uppteknar við annað en að velta okkur upp úr eigin hugsunum og löngunum.  Sennilega er þarna komin ástæðan fyrir þessu klúðri. ;)  Svo núna í lok ágúst fór ég og hitti prestinn minn og átti mjög gott spjall við hann.  Ég sveif út á bleiku skýi þegar ég var búin að tala við hann.  Allt sem ég taldi að væru vandamál hjá mér varðandi trúna, kom í ljós að voru kostir en ekki gallar :haha:  Ég ætla að taka þátt í sumar í starfi í kirkjunni minni sem heitir kærleiksþjónusta.  Það snýst m.a. um að fara og heimsækja einstæðinga í borginni og fl. 

En kristín mín, svona er nú staðan hjá mér núna.  Ætla í vetur að vera hamingjusöm heimavinnandi húsmóðir, ætla að sinna stráknum mínum vel í 10. bekkjar-hremmingum og litlunni minni líka í hennar skólagöngu, og stórunni líka að sjálfsögðu (þó ég hafi ekkert vald yfir henni lengur :S) Sinna endurbótum á húsinu okkar, reyna að vera góður formaður Foreldrafélags Fellaskóla, frábær eiginkona og mamma og ýmislegt annað, er þetta ekki bara að verða ágætt, en allt þetta vissir þú svo sem, EN SVO ætla ég að fara í Háskóla Íslands í Guðfræðideildina og taka þar djáknanám n.k. haust.  Fyrirgefðu mér, ég skal aldrei gleyma aftur að segja þér svona merkileg tíðindi ;)

Koss og knús til þín 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 23:33:01 / tyra

Kaffihúsakvöld

Jæja, kominn tími á smá vefritun frá minni.  Ég fór í vigtun í dag og ekki var það leiðinlegt, ég missti 1 kg. þessa viku :D Ég ætlaði mér að léttast um 1,5 kg, en mér er sama þó það hafi ekki gengið eftir því ég gerði mitt allra besta og meira er ekki hægt að gera.  Það verður þá bara tímamóta vigtun næsta fimmtudag 8)8)  Ég var að koma heim af kaffihúsi.  Ég fór að hitta stelpurnar af “kerlingaborðinu” í FB.  Mikið rosalega var gaman að hitta þær, og eins og venjulega hlegið alveg út í eitt.  Á tímabili hafði ég áhyggjur af því að okkur yrði hent út af staðnum :lol::lol: Svo færðu þær mér þessar elskur útskriftargjöf.  Hún er alveg yyyyndisleg.  Þetta er kertastjaki sem er búinn til sérstaklega fyrir mig.  Hann er úr gleri og á einum stað stendur kross upp úr stjakanum, þær hafa tekið allt með í reikninginn þessar elskur, vitandi það að ég er að fara í guðfræðideildina í Háskólanum næsta haust.  Æi þetta var svo fallegt af þeim, já og svo er þetta eftir voðalega frægan listamann, hann heitir Jónas Bragi Jónasson. Það er greinilegt að ég er komin í hóp með drottningunni í Danmörk, forseta Rússlands, Grikklands, Kína,  Þýskalands, ásamt forsetum miklu fleiri landa, sem eigandi listaverks eftir þennan mæta mann.  Takk fyrir stelpur mínar- koss og knús til ykkar.

Nú er þessi Súpernova vitleysa búin, og svo má hljómsveitin ekki einu sinni heita Súpernova !!  Það er eitt sem hefur pirrað mig alveg svakalega við þessa þætti, reyndar gæti ég talið upp alveg fjölmargt en nenni því ekki og tek því út það sem fór mest í taugarnar á mér.  Í BNA er greinilega gríðarleg ofnotkun á orðinu að elska einhvern.  Ég skil ekki hvernig einstaklingur getur sagt við aðra persónu sem hann þekkir sáralítið: Ég elska þig !!!  Þetta var gert aftur og aftur í þessum þætti og fór eiginlega alveg yfir strikið í síðasta þættinum þar sem, æi þessi hálfberi á endanum, játaði Dilönu ást sína aftur og aftur og hún sagðist elska hann !!  Sögnin að elska einhvern, virðist hjá þeim hafa sömu merkingu og “að vera æðislegur” eða “ mér finnst þú frábær persóna” hjá okkur.  Hvað ætli hann segi við konuna sína, bara líka “ég elska þig” Já það er margt skrítið í henni Ameríku. 

Það er búið að vera heilmikið at á mér í kringum foreldrafélagið.  Á þriðjudaginn var kynning fyrir foreldra 6. ára barna þar sem ég kynnti foreldrafélagið og eldaði matinn ofan í mannskapinn.  Hefði sennilega brunnið inni á tíma ef hún Guðrún gjaldkerinn minn og nágrannakona hefði ekki komið með mér heim eftir stjórnarfundinn í hádeginu og brytjað með mér grænmetið.  En allt tókst þetta að lokum og mikil gleði var með súpuna og brauðið mitt.

Það styttist í London, ohh ég get ekki beðið, ég ætla svo að njóta lífsins þarna úti, kaupa mér eitthvað fallegt, eitthvað fallegt fyrir krakkana mína og bónda minn, slappa af og drekka í mig mannlíf stórborgarinnar.

Jæja, læt þetta duga í bili, er farin í bólið að sofa.

Góða nótt til ykkar allra sem eruð þarna úti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 17:46:29 / tyra

Rigning og rok, en gassalega hlýtt- ekki haust enn !!

Jæja komin helgi einu sinni enn.  Veðrið í dag hefur verið svona frekar blautt og leiðinlegt.  En ekkert við því að gera því það er komið haust 8) Annars finnst mér ekki komið haust þó að dagatalið segi það, hjá mér er allt grænt ennþá, það er bara stóra víðitréð sem er farið að fella laufin.  Ég lærði loksins að setja inn myndir í gær, á reyndar eftir að láta ykkur þarna úti athuga hvort þær sjást ekki öruggleg.  Endilega látið mig vita hvort þið sjáið myndirnar- verð ykkur voða þakklát. 

Ég fór í vigtun í gær og var bara nokkuð sátt, léttist um 600 gr. sem er bara ljómandi gott af því að helgin hjá mér var alls ekki góð- fylgdi ekki planinu og borðaði feitar sósur :^), súkkulaðiköku(reyndar var þetta súkkulaði með köku):^) bjór og rauðvín- uss uss uss :^):^):^), ekki gott :^)  En eitthvað hef ég gert rétt fyrst að ég léttist!! 8| Ég ætla að vera alveg extra dugleg þessa vikuna, helst vildi ég að það færu 1,5 kg. í þessari viku- við verðum bara að bíða og sjá.  Já og fyrst að ég er búin að læra að setja inn myndir þá ætla ég að búa til danskakúrssíðu og leyfa ykkur að fylgjast með mér.

Fariði varlega í rigningunni.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 09:11:18 / tyra

Sorg í hjarta.

Jæja, nú er hún látin litla stúlkan sem er búin að berjast fyrir lífi sínu í 9 mánuði.  Hún hét Bryndís Eva: http://bebbaoghjolli.blogspot.com/    ég er búin að fylgjast með þeim allan tímann og það hefur verið mjög lærdómsríkt.  Móðir Bryndísar er alveg frábær penni og hefur notað skrif sín til að létta á hjarta sínu.  Hún hefur kennt mér margt og hugur minn er algerlega hjá þessu fólki sem ég þekki ekki neitt.  Ég felldi mörg tár þegar ég las um fráfall litlu prinsessunnar þeirra.  Ég sendi þeim mínar innilegustu samúðarkveðjur.  Ég vona bara að þessi ungu hjón fái áfram stuðning í lífinu frá sínu fólki, af því að nú þurfa þau aldrei meira á honum að halda en einmitt núna.  Nú tekur bara hversdagsleikinn við, engin Bryndís Eva að berjast fyrir.

 

 



Það gengur bara allt vel hjá mér og mínum.  Við erum loksins búin að panta okkur hótel í London.  Þegar við vorum búin að velta okkur upp úr hótelum í 3 daga þá komumst við að þeirri niðurstöðu að sennilega væri best að fara á okkar gamla góða hótel St. Giles.  Kannist þið við þetta!! Þetta er meðal dýrt hótel með litlum herbergjum en staðsetningin er alveg frábær.  Rétt við Oxfordstreet og bara tveggja mín. gangur frá neðanjarðarlestinni að hótelinu.  Úff ég hlakka svo mikið til að ég hugsa eiginlega ekki um neitt annað þessa dagana.

Af þyngdarbaráttunni er það að frétta að ég er komin vel af stað og fer í vigtun nr. 2 í dag frá sumarfríi.  Ég er þó enn að fjarlægja pínu litla þyngd sem heimsótti mig í sumarfríinu.  Ég verð nú ekki lengi að því!!! Ég ætla að halda áfram að reyna að setja inn myndir hér á síðuna mína og vonandi tekst mér það.

Jæja ætla að fara að sinna heimilinu mínu.  Guð hvað ég elska það að vera svona BARA heima vinnandi húsmóðir og dudda í því sem þarf að gera á þessu heimili.  Ég var hrikalega dugleg í gær – fúavarði hluta af nýju girðingunni, bar lakk á útihurðina okkar, slóg og rakaði bæði fyrir framan og aftan(innifalið í því er að hreinsa hunda(shit)bjakk) :whut: og hreinsaði beðin fyrir framan.  Og þá var mín líka búin á því- og gat ekki vakað eftir magna í gærkvöldi :(

Jæja læt þetta gott heita í bili.  Hugsiði hlýlega til ungu foreldra Bryndísar Evu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:30:50 / tyra

Taka tvö í dag

Jæja hér koma fréttirnar sem ég lofaði ykkur: Við hjónin erum að fara í AFMÆLISFERÐ TIL LONDON- LONDON HERE WE COME-DON'T BE AFRAID- WE WILL NOT HARME YOU :klikk:

Þar hafiði það.  Við förum laugardaginn 23.sept og komum heim þriðjudaginn 26.sept.  Fengum flugið á tilboði hjá Express- ÉG ER HRIKALEGA GLÖÐ OG SPENNT.

Já þetta verður afmælisferð okkar hjóna, við héldum hvorugt upp á fertugs afmælin okkar vegna .. já þeir sem lesa þetta vita alveg hvers vegna- vorum ekki alveg í stuði til þess eftir það sem á undan hafði gengið.

Bless í bili segir hin geisilega glaða Þórey Dögg sem á eftir að redda pössun fyrir krakka og hund, en það reddast- ég er nú Íslendingur.

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 11:01:54 / tyra

Ör-vefritun

Já ég ætla að hafa þetta ör-vefritun í dag, ég er orðin leið á þessu vefsvæði og ætla að fara að leita mér að nýju svæði.  Ég vil geta sett inn myndir og fleira án þess að  vera á mörjum þess að missa vitið....  Við vorum heima um helgina sem var mjög fínt.  Kristín krútt og hennar fólk voru hjá okkur.  Æi hvað það er gott að hafa sitt fólk í kringum sig.  Það er jú allt sem við eigum, þ.e. fólkið okkar, okkar nánustu :D

Kannski gerist spennandi hlutur hjá mér núna í dag kl. 12:00.  Læt ykkur vita ef eitthv. hefur gerst og deili þá kannski með ykkur gleðitíðindum.  Jæja nenni ekki að rita meira að sinni.

Gangið á guðs vegum (það eru engir bílar þar ;))

Tóta litla lipurtá.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 17:30:10 / tyra

NOHH BRRA R-UGLUBÚ !!!

Það er bara "vefritað" dag eftir dag !! takk fyrir þetta orð Jóhanna mín- það er betra en "blogga".  Já ég er búin að vera hrikalega dugleg í dag, búin að skúra hátt og lágt, já, bara hreinlega gera allt húsið hreint, hreinlega- ég get svarið það.  Og svo fór ég í RL búðina og keypti mér nokkrar útikertakrukkur til að hafa úti um helgina í rökkrinu.  Mér finnst þessi tími alveg frábær, þ.e. haustið, ég elska það jafnvel meira en vorið, og nóg þykir mér vænt um það.  Og vitiði hvað, í þessum skrifuðum orðum þá er sólin að brjótast fram- og það sem átti að vera rigning :D og hitamælirinn hjá mér segir: 15°C í forsælu, ekki slæmt það. Þá verð ég að hætta, henda í vél og kasta því út á snúrurnar.

Læt heyra frá mér fljótlega.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 22:25:57 / tyra

Hæ, munið þið eftir mér ?

Jæja, vá hvað það er langt síðan ég bloggaði, ég þurfti að rifja upp hvernig ég átti að skrá mig inn og fleira !! 8| En það tókst fyrir rest :D  Við erum búin að vera í sumarfríi og þess vegna hefur lítið verið bloggað í langan tíma.  Við fórum Austur - á Höfn, Djúpavog og Laxárdal í Lóni.  Ætla að skrifa meira um þetta síðar, já og svo fórum við líka á Dalvíkina mína á Fiskidaginn mikla- vá hvað það var gaman, frábært að hitta allt þetta fólk og spjalla við það.  Já  og svo voru Ólöf, Gulli, Valur og Natalía með danssýningu.  Hún tókst frábærlega- vonandi tekst mér að setja inn myndir af þessu seinna, ef ekki þá hætti ég að blogga hér og færi mig eitthv. annað.

En ég ætla að bæta mig í þessu bloggi og bæta meiru við á morgun. 

Sæl að sinni 8) Tóta litla lipurtá.


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 23:17:15 / tyra

Garðverk í rigningu !!

Já hafiði prófað að vinna í garðinum ykkar í grenjandi rigningu.  Við EÓ gerðum það í dag.  Við sem sagt byrjuðum á girðngunni okkar fyrir aftan hús, rifum þessa gömlu og erum búin að setja þverböndin og plankana sem halda jarðveginum frá girðingunni.  Á morgun spáir enn meiri rigningu og þá ætlum við að halda áfram- júhú- pollagallarnir verða bara dregnir fram og svo verðum við eins og litlir krakkar að drullumalla :)

Góðar fréttir af mömmu, hún er komin heim og líður bara ljómandi vel.  Ekkert annað markvert hefur gerst hjá okkur í dag.  Er ekki í neinu sérstöku blogg-stuði.  Er ekki til eitthvað íslenskt orð yfir það að blogga ? Svari mér sá sem veit, ég er orðin leið á þessu orði.  Ég held áfram að reyna að finna út úr því hvernig ég set inn myndir, það hlýtur að hafast á endanum.

Góða nótt gullin mín og farið varlega í rigningunni 8) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 08:32:34 / tyra

Ekkert er eins gott og morgunblogg um ekki neitt !!

Góðan daginn, samlandar mínir allir sem einn.  Allt gott hjá minni, síminn hringdi ekki neitt í nótt sem þýðir að það er allt í lagi með mömmu og sennilega hefur hún bara sofið vært og hvílt sig eftir erfiðan sólarhring í gær.  Rosalega er gott að sitja svona einn í morgninum með tebollann sinn og þvælast um í tölvunni.  Kíkka aðeins á netið og lesa blogg hjá öðrum- jafnvel gera smá at í sumum :klikk:  Já það jafnast ekkert á við svona rólegar morgunstundir, allir sofandi eða í vinnu- nema ég og tölvan 8|  Það er eiginlega alltaf mitt fyrsta verk á morgnana að líta á bloggið hjá ungu hjónunum sem eru með litlu veiku stúlkuna, hún er búin að vera meðvitundarlaus síðan í nóv. eða des.  Þetta er alveg hræðilegt sem á þau er lagt, en þau taka þessu af svo miklu æðruleysi og þroska að maður gæti haldið að hér væri á ferð fólk sem er komið nálægt fertugu, með mikla reynslu.  En þetta eru bara krakka-grey, en þau standa sig svo vel.  Við hin höfum gott af því að lesa sögu þeirra og þá áttar maður sig á því hversu heppin maður er í lífinu og hefur það gott.  Ég læt fylgja hér með síðuna þeirra- ég held að það hljóti að vera í lagi því hún er svo útbreidd núna að ég er varla að brjóta neinar reglur með því að birta hana hér : http://bebbaoghjolli.blogspot.com/

En nóg morgunspjall að sinni, læt heyra frá mér síðar.

Njótiði dagsins.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 23:48:26 / tyra

SUMARFRÍ-SUMARFRÍ-SUMARFRÍ

Jæja nú er Erlendur minn loksins kominn í sumarfrí- túrilú !! 8| 8) :haha: Það er ýmisleg sem stendur til að bauka meðan hann er í fríi.  Við ætlum að smíða girðingu kring um garðinn að aftan, svo á að taka upp hellur, jafna undirlag og leggja aftur, snyrta garðinn allan hátt og lágt svo allt fari ekki í órækt á meðan við erum í fríi og svona eitt og annað sem þarf að gera.  Já eins og þið sjáið þá er ég harður húsbóndi og gef sko ekki neitt eftir í framkvæmdum.  Nei, án spaugs þá er þetta eitthv. sem við ætlum að reyna gera ásamt því að ferðast og smíða í Sólgerði.  Ég ætla þó að reyna að koma því inn á milli að bóndi minn elskulegur hvíli sig eitthvað líka. :$

Pabbi hringdi í mig í morgun og sagði mér að mamma hefði ekki sofið neitt vegna þess að hún hefði haft svo mikla hjartsláttaróreglu í alla nótt.  Ég dreif mig til þeirra og fór með mömmu til læknis.  Þessi læknisferð endaði á sjúkrahúsinu í Keflavík þar sem hún var lögð inn.  Þegar ég fór frá henni kl. 15:30 þá var hjartað orðið rólegt og henni leið miklu betur.  Ég heyrði svo í pabba áðan, þá var hann búinn að líta til hennar og allt var í góðu ennþá sem er frábært.  Ég vona bara innilega að það haldi áfram þannig.  :haha:

En nú að öðru, það er komið á hreint að Ólöf og Gulli eiga að sýna dans á Fiskideginum mikla á Dalvík þann 12. ágúst (held að það sé þá) og kannski verða þetta fleiri pör sem sýna með þeim.  Þetta er voða spennandi því þetta verður sennilega mesti mannfjöldi sem þau hafa sýnt fyrir, þó eru þau vön að dansa fyrir framan fullt af fólki, en ekki kannski þennan fjölda sem venjulega kemur heim á þessum degi. :haha:

Af kúrnum mínum er allt gott að frétta, hann er þarna og bíður eftir mér, ég er bara að passa mig núna að þyngjast ekki.  Ég ætla svo að taka all verulega á því þegar sumarfríið er búið og ég stefni á að vera búin að léttast um 25 kíló fyrir 25. nóvember í ár. :$:$  Þá erum við EÓ að fara til Rómar – ÚÚhhhh en rómó. :klikk: Og ég hlakka ekkert smá til þess.

Jæja þetta er gott í bili.

Kv. Lipurtá. :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 08:50:50 / tyra

Mistök og aftur mistök.

Ég virðist seint ætla að læra á þessar blogg síður.  Ég treysti þeim of mikið og nenni ekki alltaf að skrifa bloggið fyrst inn á word og færa það svo hér inn.  Í fyrrakvöld var ég búin að skrifa mjög langt og djúpt blogg en það hvarf af skjánum áður en ég gat notað trixin sem var búið að kenna mér- blokka og copy og allt það áður en ég sendi þetta frá mér á síðuna.  En þetta á ekki að vera nein sárabót, heldur áminning fyrir mig að vanda mig betur, og sennilega að skoða annað blogg-umhverfi, líst vel á það sem Sigrún Arna vinkona mín bloggar á- það lítur út fyrir að vera svona "fullorðins".

Jæja, nú var ég einu sinni enn að taka séns- ef þetta pár kemur á netið, þá takk netguð :whut:

Tóta litla lipurtá- með engar lipurtær þessa vikuna :cry:


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 22:31:18 / tyra

9 í dag og 666 í allt- úúúhhhhhh.

Vá mér brá ekkert smá þegar ég sá þessar tölur á blogginu mínu.  666 hafa skoðað það í heildina, ekki uppáhalds talan mín.  Það er langt síðan ég bloggaði síðast, ég hef bara ekki verið í neinu blogg stuði, eins og sagt er.  Ég er búin að vera dugleg í dag, ég tók til í garðinum mínum, bæði fyrir framan og aftan hús, sló og allt.  Og flengdist svo með allt draslið í sorpu ásamt 2.vikna skammti af dagblöðum, fernum og morgunmatskössum.  Alltaf góð tilfinning þegar ég hef skilað af mér til Sorpu gömlu.  Við vorum í Sólgerði um helgina.  Erlendur og Elvar minn byrjuðu að klæða panel upp í loftið- vá hvað það er spennandi.  Við erum búin að vera svo dugleg að halda í okkur með að framkvæma inni.  Við erum bara að gera þetta eftir fjárhag, ekkert verið að spenna sig og taka lán, enda færi þá af þessu mesti glansinn.  Þetta er það dýrmætasta sem við fjölskyldan eigum og svona viljum við hafa það.  Enda teljum við að við tengjumst staðnum miklu betur með þessu móti.  Þetta hefur kostað blóð, svita og tár, en þetta er okkar og bara okkar.  Þið ættuð að sjá mig þegar ég kem austur, alltaf sami rúnturinn- stika um lóðina, tékka á gróðrinum, þefa af trjánum, þreyfa á rifs- og sólberjarunnunum, lít við í uppeldisreitnum, skrepp niður að grenitrjánum og rölti svo heim að húsi og kem mér vel fyrir á veröndinni og horfi yfir lendur mínar, ef ég væri með tippi þá myndi ég sennilega taka út á mér græjuna og pissa til að reka endahnútinn á að þetta er mitt land- merkt mér :haha:

Já og mikið rosalega hlakka ég til að sjá handboltaleikinn á laugardaginn.  Ég ætla sko ekki að missa af honum. Ég er viss um að strákarnir leggja Svíana aftur og slátra Svíagrýlunni endanlega.

Nóg í bili, þangað til næst.  :haha::haha: Tóta litla lipurtá :haha::haha: 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 11:06:56 / tyra

Fimmtudagur.

Langt síðan ég hef sett eitthv. á blað.  Þetta á samt að verða ör-blogg.  Krakkarnir eru í prófum svo það er nóg tuðað á þessu heimili þessa dagana.  Nei annars eru þau bara voða dugleg þessar elskur, og þegar þau koma heim úr prófunum þá spyr mamman alltaf: og hvenig gekk.  Og mamman fær alltaf sama svarið: Bara vel !! Það er bara spurning hvort þetta er bara nokkuð vel, eða ekki nógu vel, eða frábærlega vel, eða ...., nei þetta kemur allt í ljós, þau eru alla vegana að leggja sig fram þessar elskur.  Ég hlakka alveg voðalega mikið til helgarinnar komandi, þá ætla ég að hafa gaman með fjölsk. minni.  Krakkarnir búnir í prófum, allt stress búið hjá mér, að vísu heldur hann Erlendur minn alltaf áfram í sama vinnu stressinu, en hann er orðinn svo flínkur í því að skilja stressið eftir í vinnunni að hann verður örugglega í stuði líka um helgina.  Eins og ég sagði á þetta að vera ör-blogg.  Ég ætla að skrifa meira um helgina og segja ykkur hvað hefur haldið mér frá bloggi undanfarið.

Gangið glöð út í sumarið með sól í hjarta..


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4